Kennarar
Allir kennarar Prófbúða búa yfir einstakri þekkingu og reynslu á því námsefni sem þeir kenna. Þeir hafa allir starfað við kennslu á námskeiðunum og þekkja því uppbyggingu prófa og hver áhersluatriðin eru.

Jón Gunnar Björnsson
Tölvunarfræðingur frá HÍ 2004, MBA frá sama skóla 2006. Starfar hjá Nýherja. Hefur kennt dæma- og vertíma í tölvunarfræði I/IA og námskeiðin Stýrikerfi og Viðmótsforritun þar sem öll forritun fer fram í Java.

Björn Björnsson
Tölvunarfræðingur frá HÍ 2003, M.sc. í Iðnaðarverkfræði frá HÍ 2006. Hefur kennt dæma- og vertíma í tölvunarfræði I/IA og í námskeiðunum Þróun Hugbúnaðar og Hugbúnaðarverkefni 1 sem byggja að miklu leyti á hlutbundinni hugbúnaðargerð. Ýmis önnur kennsla og rannsóknir á vegum verkfræðideildar.

Bergsteinn Einarsson
Stærðfræðingur frá HÍ 2005 og stundar nú meistaranám í Stærðfræði í HR. Kenndi undirbúningsnámskeið í stærðfræði fyrir inntökupróf í læknisfræði 2004. Hefur kennt mikið af aukatímum í stærðfræði fyrir háskólanema í stærðfræði, verkfræði og viðskipta- og hagfræði.

Hannes Árdal
Stærðfræðingur frá HÍ 2005 og starfar hjá Markaðsviðskiptum Kaupþings auk þess að stunda meistaranám í fjármálaverkfræði við HÍ. Kennari (STÆ, EÐL) í fullu starfi við MA veturinn ´03-´04. Kenndi dæmatíma (STÆ) við kennaradeild HA veturinn ´03-´04. Kenndi dæmatíma (STÆ) við verkfræðideild HÍ veturinn ´04-´05. Kennari (STÆ) hjá Talnatökum ´04-´06. Einkakennsla (STÆ, EÐL) frá ´99
Helgi Magnússon
Helgi Magg hefur um 10 ára reynslu í námskeiðahaldi og kennslu í stærðfræði,tölfræði,eðlisfræði og rekstrarhagfræði. Hefur áður kennt td. í MK, Fullorðinsfræðslunni og HÍ. Hefur ávallt hlotið mikið lof og þakklæti nemenda.
