PRÓFBÚÐIR
Prófbúðir eru alvöru undirbúnings og upprifjunarnámskeið fyrir stúdenta sem vilja standa sig vel á prófunum Háskólanám er erfitt og sum námskeið geta virkað allt að því óskiljanleg ef maður fer á mis við grunninn. Þetta á sérstaklega við um ýmsa stærðfræði, tölfræði, viðskiptafög og t.d. forritun.
Undanfarin ár hefur IT-Ísland staðið fyrir Prófbúðum fyrir viðskipta- tölvunar- og verkfræðinema í HÍ og HR við góðan orðstír í fjölda ára. Prófbúðir ganga út á það að fara ítarlega yfir allt námsefni vetrarins á eins einfaldan hátt og mögulegt er. Markmiðið er að læra og hafa virkilega gaman að því. Nær allir sem sótt hafa Prófbúðir telja að þær hafi verið gagnlegar og mikill meirihluti telur að þátttaka þeirra í þeim hafi hækkað þá um tvo eða meira í einkunn á prófi.
Námskeið eru í boði fyrir nemendur bæði í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Fjöldi námskeiða er í boði í Verkfræði, Viðskiptafræði, Sálfræði og Raunvísindum. Lista námskeiða og lýsingar má finna undir Námskeiðin hér til hliðar.
Eftirtalin námskeið eru á næstunni og skráning er opin
Smelltu á námskeið til að fá frekari upplýsingar um það
Háskóli ÍslandsVerkfræðiEðlisfræði 2V, 03.05 kl: 10:00 í Sal 6, Háskólabíói (miðjusal), kr:6.000 |
